Leiguhúsnæði
Námsmenn í leiguhúsnæði þurfa að sanna eðlilegar leigugreiðslur með því að senda afrit af þinglýstum leigusamningi.Almennt - gildir fyrir alla umsækjendur
Sækja þarf sérstaklega um námslán fyrir hvert aðstoðarár. Hægt er að sækja um haust-, vor- og sumarönn á sömu umsókn.
Einstæðir foreldrar sem sækja um lán í fyrsta skipti þurfa að senda staðfestingu á forsjá barns. Menntasjóðurinn sendir út tölvupóst ef upplýsingar vantar.
Lánþegar undirrita skuldabréf fyrir hverja lántöku með rafrænum hætti.
Allir umsækjendur þurfa að staðfesta endanlega tekjuáætlun á árinu í gegnum Mitt Lán á heimasíðu Menntasjóðsins. Send er út beiðni í tölvupósti í lok árs,
Menntasjóðurinn sækir skattframtalsupplýsingar um tekjur umsækjenda beint frá Ríkisskattstjóra á vorin áður en vorlán eru endanlega afgreidd.
Námsmenn á Íslandi
Námsmenn í MBA-námi í HÍ og HR, MPM-námi í HR og meistaranámi á Bifröst þurfa að skila innritunarvottorði. Iðnnámsnemar sem eru að sækja um í fyrsta skipti þurfa að skila staðfestingu frá skóla um stöðu í námi.
Námsmenn í starfsnámi/iðnnámi sem greiða skólagjöld eru beðnir um innritunarvottorð þegar þeir hefja nám.
Námsmenn erlendis
Allir umsækjendur sem eru að hefja nám erlendis þurfa að skila innritunarvottorði frá sínum skóla. Ef sótt er um lán vegna skólagjalda þarf að senda staðfestingu frá skólanum á fjárhæð þeirra.
Námsmenn þurfa sjálfir að senda Menntasjóðnum námsárangur eftir hverja önn.
Norðurlönd
Allir umsækjendur á Norðurlöndunum þurfa að senda skattframtalsupplýsingar frá námslandinu áður en vorlán er greitt út að fullu. Menntasjóðurinn sendir út beiðni.
Bandaríkin, Kanada og Ástralía
Námsmenn í Bandaríkjunum, Kanada og Ástralíu fá eyðublöð send frá Menntasjóðnum sem skólinn þarf að fylla út. Námsmenn á fyrstu önn í nýju námi fá eyðublað sem nefnist „Course of Study“ og „Educational Cost and Financial Aid“. Þeir sem eru lengra komnir í námi fá einungis sent seinna eyðublaðið.
Nám erlendis (sjá þó Bandaríkin, Kanada og Ástralía)
Námsmenn sem sótt hafa um skólagjaldalán vegna náms erlendis þurfa að senda upplýsingar frá skóla um skólagjöld á námsárinu.
Frá umsókn til útborgunar
Einstæðir foreldrar - staðfesting á forræði barns
Einstæðir foreldrar sem eru að sækja um í fyrsta skipti þurfa að senda staðfestingu á forræði barns. Sjóðurinn sendir út beiðni.Skattframtal
Allir lánþegar verða að staðfesta endanlegar tekjur með skattframtali. Námsmenn á Norðurlöndunum verða til viðbótar íslensku skattframtali að senda afrit af álagningarseðlum eða skattframtali í námslandinu.Staðfesting á skólavist
Staðfestinguna verða þeir námsmenn á Íslandi að senda sem borga há skólagjöld og einnig námsmenn erlendis sem eru að hefja nýtt nám. Umsóknin tekur ekki formlega gildi fyrr en slík staðfesting hefur borist sjóðnum. Menntasjóðurinn sendir út beiðni.Útreikningur á láni
Menntasjóðinn birtir lánsáætlun á Mitt Lán og staðfestir þannig gildar umsóknir.Enskumælandi lönd
Senda þarf Menntasjóðnum upplýsingar um skólagjöld og styrk/styrkleysi fyrir hverja önn eða allt námsárið. Menntasjóðurinn sendir námsmönnum eyðublöð sem skólinn þarf að fylla út.Endanleg tekjuáætlun
Staðfesta verður tekjuáætlun í lok árs. Menntasjóðurinn sendir út beiðni.Námsárangur
Námsárangur þarf að berast eftir hverja önn. Námsárangur frá skólum á Íslandi berst beint til Menntasjóðsins, en námsmenn erlendis verða að sjá um að senda sjálfir. Þeir sem ekki taka próf á miðjum vetri verða að senda staðfestingu á námsástundun.Lágmarksárangur á önn
Lágmarksnámsárangur á önn er 22 ECTS-einingar eða ígildi þeirra. Ef um fjórðungaskóla er að ræða er lágmarksárangur á fjórðungi 15 ECTS-einingar eða ígildi þeirra.