Ákveðið hefur verið að námsmenn geti óskað eftir því að tekjur sem aflað er á árinu 2020 vegna vinnu í bakvarðarsveitum heilbrigðis- og velferðarþjónustunnar og bakvarðarsveit lögreglunnar verði undanskildar og komi ekki til frádráttar við útreikning á framfærslu námsmanns skólaárið 2020-2021.
Þá hefur verið ákveðið að námsmenn sem fá greiddan út séreignasparnað á árinu 2020 geta óskað eftir því að hann verði undanþeginn við útreikning á námsláni skólaárið 2020-2021.
Jafnframt er vakin athygli á því að umsóknarfrestur um námslán fyrir haustönn 2020 hefur verið framlengdur til 1. desember 2020 og þeir sem sækja um námslán eftir námshlé eða hafa ekki verið á námslánum á síðasta skólaári fá fimmfalt frítekjumark. Sækja skal um námslán inn á Mitt Lán.
Sækja verður um lækkun tekna við útreikning námslána vegna launa við vinnu í bakvarðarsveit og vegna úttektar á séreignarsparnaði með því að senda tölvupóst á menntasjóður@menntasjóður.is